| Um Þriðja Testamentið |
|
|
|
Um
Um Þriðja Testamentið Þriðja Testamentið felur ekki í sér neinar kenningar. Þetta snýst í rauninni allt um reynslu- persónulega reynslu. Fyrir lesandanum getur það í fyrstu skilist sem kenningar. Og það ekki fáar! Það tekur tíma þar til kenningarnar hafa verið meðteknar og orðnar að persónulegri reynslu. „Hversu langan tíma?“- gæti einhver spurt sig. Einn dag? Nokkrar vikur? Aldir? Fimm æviskeið á þessari jörðu? Hver veit.
Eilífðin Í Þriðja Testamentinu er lífið séð frá eilífu sjónarmiði. Lífið er ekki skapað. Við erum ódauðleg. Skapað efni er bundið fæðingu og dauða. Þú og ég erum ekki skapað efni. Verkfæri okkar eru það. Líkami og hugsun tortímast. Þau breytast. Sem betur fer! Lífið, skaparinn, tortímist ekki. Þú ert hluti af heildinni. Heildin hvílir í eilífðinni og varanleikanum. Eilífðin er nafnlaus. Hún einfaldlega er. Þegar við upplifum þetta, erum við „eitt með föðurnum“, líkt og Kristur.
Alkærleikur Samkvæmt Þriðja Testamentinu þá erum við meistarar tíma og rúms. Alkærleikur opnar glugga sálarinnar út til eilífðar og óendanleika. Alkærleiki er uppspretta þekkingar. Við finnum okkur sjálf, ódauðleika. Mörk tíma og rúms hverfa. Við sköpum okkar eigin örlög. Erum við hamingjusöm? Ekki alltaf en við þróumst og lærum í gegnum mörg líf hér á jörðu.
Réttlæti Alls staðar ríkir ást og tilgangur. Jafnvel þegar útlitið virðist hvað mest óreiðukennt. Lögmálin eru eilíf, þau eru ekki fundin upp. Ekkert frekar en lífið sjálft. Allt sem við gerum kemur til okkar aftur. Fyrr eða síðar. Gott sem illt. Við höfum yfir ótakmörkuðum tíma að ráða. Þess vegna er lögmálið að elska náungann eins og sjálfan sig æðsta takmarkið í lífinu. Við uppskerum svo sem við sáum. Þetta kallast lögmál orsaka og afleiðinga.
Einkenni vanþekkingar Að þekkja ekki sjálfan sig skapar vandamál í okkar eigin huga og gagnvart meðbræðrum okkar. Þessi þjáning er uppfylling á gömlu spádómunum um „Dómsdag“. Þriðja Testamentið segir að þessi þjáning, tilkomin vegna vanþekkingar, muni leiða okkur að sömu niðurstöðu, kærleika.
Andleg vísindi En þessu stigi alkærleika er ekki unnt að ná fyrirhafnarlaust. Þessu hárfína jafnvægi verður einungis náð stig af stigi í gegnum þróunina. Jafnvel viska er þróunarferli. Markmiðið með þessu ferli er hin endanlega þekking á sannleikanum. Til þess að ná þessu stigi verður sérhver einstaklingur að rannsaka lífið á eigin vegum, en í þessu ferli geta greiningarnar orðið honum til aðstoðar. Þessi „stig af stigi rökhyggja“ leiðir okkur að hinni kosmisku lífssýn...
Hver er Martinus?
Hvernig Þriðja
Testamentið getur komið að notum
Málsvörn allra
lifandi vera
Engin trúarbrögð,
engar trúarjátningar
Tilgangur
þjáninganna
Allir munu vera
fullkomnir
Biblían og Þriðja Testamentið Samkvæmt Martinusi þá inniheldur Biblían hinn æðsta trúarlega boðskap í heiminum. Hann segir að það eru ekki til betri leiðbeiningar um leiðina til Guðs og hamingjusamra örlaga en þær sem þegar hafa verið afhentar mannkyninu í, til dæmis, Fjallræðu Jesú Krists. Það er ekki til æðra boðorð en „Elska skaltu Guð af öllu hjarta og náungann eins og sjálfan þig“. Þriðja Testamentið hefur á engan hátt verið skapað til þess að leiða fólk frá þessum eilífu sannindum, þvert á móti hefur það verið skapað til þess að sýna að þau tjá vísindaleg raungildi. Allar þær hörmungar og heimsstyrjaldir á okkar tímum virðast kalla á áminningu á nefndum sannindum. Framhald af ætlunarverki Krists Er það mögulegt að réttlæta framhald af Biblíunni, út frá því sem Kristur hefur sagt okkur? Í Jóhannesarguðspjalli, 16. Kafla, segir: „Enn hef ég margt að segja yður en þér getið ekki borið það nú. En þegar hann kemur, andi sannleikans, mun hann leiða yður í allan sannleikann. Það sem hann segir yður hefur hann ekki frá sjálfum sér heldur mun hann segja yður það sem hann heyrir og kunngjöra yður það sem koma á. Hann mun gjöra mig dýrlegan, því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður.“ (Jóh. 16:12-15) Út frá þessari tilvitnun má álykta að Kristur hafi ekki geta sagt frá öllu sem hann vissi. Ekki einu sinni hinir persónulega útvöldu lærisveinar gátu skilið það allt. Samkvæmt Kristi myndi sannleikurinn um Guð og leyndardómar lífsins verða kunngjörðir síðar.
Vígsla
Martinusar
„Huggarinn, Heilagur andi“ er andleg vísindi „Hvað er „Huggarinn, Heilagur andi“? Hann er klárlega ekki persóna, nýr Kristur, sem mun koma til þess að vera milliliður milli Guðdómsins og manneskjanna. Hann er vísindi um alheiminn og þar með um Guð. Hann á að vera útskýring á lausninni að leyndardómi alheimsins. Þess vegna er hann bók sem fólk getur lesið, líkt og það getur lesið biblíuna. Þessi „Huggari, Heilagi andi, sem Faðirinn mun senda“ sem Kristur spáði að myndi koma, er þess vegna „bók lífs“ eða „bók þekkingar“ sem mun vera opinberuð mannkyninu. En bók sem inniheldur hinn raunverulega sannleika um Guðdóminn og alheiminn getur aðeins verið framhald að kosmisku heimsmenningu sem Kristur hóf fyrir tvö þúsund árum síðan og það sem við þekkjum sem „Kristni“. Þetta á að vera bók sem getur þjónað sem vitsmunalegur en ekki kreddufastur námsgrundvöllur í Kristni. Þetta á að vera bók sem sýnir hina fullgerðu Kristnu heimsmenningu í efnislegum sem og andlegum birtingarmyndum. Þetta á að vera bók sem lýsir ljósi í gegnum hámark bæði ljóss og myrkurs og meðfylgjandi áhrifum þeirra á lífsvirkni alheimsins- ódauðleika lifandi vera. Þetta þarf að vera bók sem sýnir óendanleikan og eilífðina sem aftur leiða af sér hina lifandi lífsvirkni í mynd „tíma“ og „rúms“. Bók þar sem æðsta niðurstaðan er „altæk þekking“ og „almáttur“ sem í sameiningu mynda, þegar fullkomið jafnvægi ríkir, alkærleika, og þar með er það hið sama og hinn eilífi lífsneisti lifandi vera. Hér höfum við komið að „fasta punkti“ alheimsins, og upphaf hans „Föður Lífsins“, hinn algjöri og altæki eilífi Guðdómur. Slík bók getur ekki hjá því komist að innihalda „hið mikla“, er Kristur átti eftir að segja mannkyninu, en sem Guð myndi færa framtíðarkynslóðum síðar meir. Slík bók getur ekki hjá því komist að vera „Huggarinn, Heilagur andi“. Vegna grundvallarstoðar sinnar innan kristninnar og vegna sambands hennar við hin tvö testamenti biblíunnar þá er réttmæti í því að kalla hana „Þriðja Testamentið“. Umrætt „Þriðja Testamenti“ er því bók um visku eða þekkingu. Hún sýnir okkur eilífu útgeislun „alkærleikans“. Hún bendir okkur á þá „mynd af Guði“, sem allar lifandi verur í gegnum endurfæðingu eða endurholdgun eru skapaðar eftir. Í "Þriðja Testamentinu" eru allar ófullgerðar veru, þ.e.a.s. "efnislegar verur", dýr jafnt sem manneskjur, sýndar á sömu leið, leið sem leiðir óhjákvæmilega til alheimsvitundar og þar með upplifun á gullnum dýrðarljóma alheimsins, hinu gullna ljósi, hins eilífa lífsneista lifandi vera og þar með til "Kristsvitundar" og þess að vera "eitt með Guði". Kristur var nú fyrirmyndin að sköpun vitundar Guðs í manneskjum. Sagði Kristur ekki einmitt: "Mér er veittur almáttur á himni sem og jörðu"? Hvernig ætti hann annars að geta verið í Guðs mynd án þessa hæfileika? Og hvernig ætti einhver önnur vera að geta verið sköpuð í þessari sömu mynd án þess að þurfa að vera leidd til þessa sama hæfileika? "Huggarinn, heilagur andi" er þannig, í mynd þessa "Þriðja Testamentis", framhald af boðskap Krists. Hann er framhald af boðskap hins eilífa Ljóss frá “stjörnunni yfir Betlehem”. Hér í þessu eilífa ljósi er opinberað fyrir heiminum lausnin á stærstu lögmálum lífsins og þar með óhagganlegum undirstöðum kristindómsins, lífsgrundvöllur hamingju og sælu”. (Tilvitnanir úr handriti skrifuðu af Martinusi á síðustu árum lífs hans sem hafa ekki enn verið gefin út í heild sinni. Frá Inngangi að Þriðja Testamentinu).
Ástandið í heiminum eða hinn boðaði „dómsdagur“ Þessi ábending er nauðsynleg; það sýnir ástandið í heiminum nú á dögum ljóslega. Það er þannig, að því verður helst lýst sem dómsdegi eða ragnarökum, sem Kristur sagði að koma myndi yfir mennina á hinum "síðustu tímum". Er þess ekki enn fremur getið í frásögnum biblíunnar um framtíðina, að "djöfullinn æði í makt og miklu veldi"? - Hvað er það, sem við höfum séð í mynd tveggja heimsstyrjalda, er geisað hafa í mannheimi á þessari öld? - Höfum við ekki orðið vitni að tilraunum til að eyða milljónaborgum með íbúum þeirra og menningarverðmætum? - Já, hefur ekki jafnframt verið reynt að útrýma heilum kynflokkum manna? - Höfum við ekki séð milljónir manna myrtar - ekki eininguis á vígvöllunum sjálfum í vörn fyrir land sitt eða í árás á líf og eignir annarrar þjóðar, heldur hafa óbreyttir borgarar verið hnepptir í gasklefa og hreinlega myrtir þar algerlega utan við lög og rétt og vitaskuld án nokkurs minnsta tillits til boðorða lífsins: "Þú skalt ekki morð fremja", "Þú skalt fyrirgefa náunga þínum", "Slíðra þú sverð þitt, því að allir þeir, sem grípa til sverðs, munu farast fyrir sverði". Er ekki öll fylling lögmálsins einmitt boðorðið mikla: "Elska skaltu Drottinn Guð þinn yfir alla hluti fram og náungann þinn eins og sjálfan þig"? - Hvar er trúin á kærleiksríkan Guð og raunhæfa kristna menningu í þessari dómsdagstilveru, þar sem aragrúi manna, börn jafnt sem fullorðnir, hafa þjáðst til dauða í hinum hryllilegu fangabúðum eða aftökustöðum, sem vörpuðu djöfullegum helskugga yfir alla jörð? (Heimsmyndin Eilífa (1968): Inngangur, 2. gr.)
Mennirnir vaxa upp úr trúarkreddum Hvers vegna hafa hinar trúarlegu hugsjónir, sem boðaðar hafa verið mönnunum í þúsundir ára, ekki getað hindrað þetta djöfullega athæfi og afleiðingar þess: Dauðahryglu, örkuml, sjúkdóma, örbirgð og siðleysi? - Kemur það ekki einmitt hér í ljós, að kenningar þær og hugsjónir, sem frá trúarbrögðunum stafa, hafa ekki getað frelsað heiminn frá þessu skelfingartímabili dómsdagsins, hversu guðdómlegar sem þær annars hafa verið? - Já, sjáum við ekki einmitt, að mennirnir blátt áfram vaxa upp úr þessum hugsjónum, næstum eins og börn vaxa upp úr fötum sínum og skóm? - Þá er eðlilegt að menn glati hæfileikanum til þess að trúa á þær? - Hafa ekki milljónir manna orðið efnishyggjumenn, guðleysingjar? - Er það ekki enn fremur óhagganleg staðreynd, að þessi tala fer sívaxandi? - Að í kirkjum eða guðshúsum standa sífellt fleiri stólar auðir við guðsþjónustur? Er það ekki um leið orðið staðreynd, að æðstu alheimssannindi lífsins, trúarleg boðorð eða kenningar er orðið að dulspeki, orðið að einhverju, sem blátt áfram er talið að viti bornir menn geti ekki lagt sig niður við að stunda eða trúa á? Eru það mennirnir, sem eitthvað er bogið við, eða eru það trúarlegu hugtökin sem eru rangsnúin? (Heimsmyndin Eilífa (1968): Inngangur, 3. gr.)
Menn, sem veita hugmyndum eða kenningum trúarlegs eðlis viðtöku án þess að spyrja um rök Í altækum skilningi er ekkert að mönnunum eða trúarhugmyndunum. Trúarhugsjónirnar eru snilldarlega aðhæfðar þróunarstigi þeirra manna, sem þær voru gefnar. Og þessum mönnum eru þær grundvöllurinn, sem allt hvílir á. En mikill hluti mannkynsins er vaxinn upp úr þessu þróunarstigi. Þeir lifa í allt öðru hugrænu andrúmslofti en því, sem hinar trúarlegu niðurstöður eða kenningar voru sniðnar fyrir, og viðkomandi menn gátu aðhyllst til fulls, sökum þess að eðlishvatirnar áttu ennþá ríkari ítök í þeim en vitsmunirnir. Þeir voru ekki ennþá svo þroskaðir vitsmunalega, að þeir krefðust staðfestingar skynseminnar á hugsjónum eða kenningum trúarbragðanna eða heimtuðu rök fyrir þeim. Þeim var nóg, að þær voru útgefnar af yfirvöldum. (Heimsmyndin Eilífa (1968): Inngangur, 4 gr.)
Menn þeir sem táknmyndirnar og jafnframt aðalritið, sem þær eru viðauki við, eru ætlaðar. En þannig er þetta ekki nú á dögum. Nú hefur geysilegur fjöldi manna misst hæfileikann til þess að trúa, því að eðlisávísun þeirra hefur meira eða minna látið undan síga fyrir vitsmunaþroska. Þar með hafa þeir öðlast hæfileika til þess að geta sjálfir greint, rannsakað og athugað. Eftir því sem þessi þróun færist í aukana, krefjast menn í vaxandi mæli rökstuðnings eða viðurkenningar vísindanna á sérhverri hugsun eða humyndir, eiga þeir að veita henni viðtöku sem sannindum. En það væri mjög ósanngjarnt að ásaka þessa menn fyrir framkomu þeirra. Því að þeim er ómögulegt að trúa á kenningar trúarhugmyndanna, einmitt fyrir það, að þær eru aðeins birtar sem hreinar niðurstöður eða staðhæfingar án þeirrar rökréttu eða vísindalegu uppbyggingar, sem þær hvíla á. Það er samkvæmt þessu, að táknmyndabók þessi og aðalrit það, sem hún er viðauki við, hefur verið samin. Nefnd bók er sem sé samin þeim mönnum til hjálpar, sem engan veginn geta trúað einum saman staðhæfingum, nema þær byggist á skynsamlegum rökum, en leita þó engu að síður með heilum huga og hjarta að réttlætingu dómsdags-ástandsins, réttlætingu, sem þeir eru farnir að finna að hlýtur að eiga sér stað að baki skilningsleysis og sljóleika daglegs lífs. Hér er komsiskri þekkingarleit þessara manna ruddur vegur til þeirrar leifturskýru réttlætingar lífsins sjálfs á myrkrinu í heiminum, að það sé einn liður í sköpun hins eilífa viðhalds á grunntóni alheimsins: kærleikanum. (Heimsmyndin Eilífa (1968): Inngangur, 5. gr.)
Að þekkja sjálfan sig er hið sama og að þekkja Guð Námið á Þriðja Testamentinu er líkt og skoðunarferð um eilífan heim skínandi fegurðar. Undir góðri leiðsögn rökfræðinnar erum við leidd, skref fyrir skref, að innri athvarfi okkar eigin Égs, þar sem við upplifum eilífa og ódauðlega tilveru handan tíma og rúms. Hér, í okkar innsta kjarna, erum við sameinuð og "eitt með Guði". Á þessari leið uppgötvum við að hinn eilífi og altæki Guðdómur lifir í öllu sem gerist, og býr í sérhverri sveiflu eða hreyfingu í hinum skapaða heimi. Hinn hagnýti tilgangur með útskýringum Þriðja Testamentisins á heiminum er að kenna okkur að sjá, heyra og skilja hið guðdómlega mál sem gjöf sem beint er að okkur persónulega og í kærleika af Forsjóninni, og að læra að elska náunga okkar - það er að segja, hverja einustu veru sem verður á vegi okkar - sem okkur sjálf. Þegar við höfum meðtekið með okkar eigin augum hina guðdómlegu heimsskipan og höfum náð með okkar eigin skilningi að sjá að allar lifandi verur í hinum efnislega heimi eru að þróast, eru á leiðinni að verða fullkomnar í Guðs mynd og líkingu, erum við á ný á sama máli og sameiginlegur skapari okkar um að "allt sé harla gott".
Inngangur, niðurstaða og samantekt unnin af The Third Testament Foundation
© Tilvitnanirnar úr Þriðja Testamentinu eru varðar höfundarétti af The Institute of Martinus Spiritual Science, Kaupmannahöfn. Danmörku. Öll réttindi áskilin.
|
|||||