Drápslögmálið
Stóri appelsínuguli boginn og sverðið á vinstri hliðinni tákna myrka gjörð sem á sér stað gagnvart tilteknum einstaklingi (hvíti þríhyrningurinn). Hér eru viðbrögðin í anda hefndarlögmálsins (sverðið), er við þekkjum úr Gamla Testamentinu sem- auga fyrir auga, tönn fyrir tönn.
Við uppskerum svo sem við sáum frá lífi til lífs
Frá kosmisku sjónarmiði má sjá hvernig við sköpum okkur sjálf örlög frá lífi til lífs (appelsínugulu kassarnir), með hvíldartímabilum í andlega heiminum inn á milli (gulu kassarnir).
Afleiðingar af drápslögmálinu
Stríð, pólitískar og trúarlegar deildur, fátækt, veikindi og örvænting eru til komið vegna vanþekkingar um hið eilífa líf og karmalögmálið. Menn trúa því að þeir geti heyjað stríð og uppskorið frið.
Það er ekki fyrr en eftir uppskeru þjáninganna sem það fæðist skilningur á kærleikslögmáli lífsins: „Elskaðu óvini þína, gjörðu þeim gott sem hata þig, og biddu fyrir þeim er ofsækja þig“.
Kjötát er einnig dæmi um það hvernig menn „vita ekki hvað þeir gjöra“. Öll sú þjáning sem við veitum öðrum verum, stórum sem smáum, snýr aftur til okkar. Eldfjallið táknar náttúruhamfarir sem sýnir að við erum ekki að fullu varin gagnvart stórumhverfi okkar, jörðinni. Við erum sjálf stórvera gagnvart líkama okkar. Ef við sköpum honum slæm skilyrði fæðumst við á ytri náttúrusvæðum sem eru hættuleg í samsvarandi mæli. En jafnvel í gegnum myrkur vígslunnar, á „svæði drápslögmálsins“, erum við umkringd kærleika (geislabaugurinn). Hin móttækilega sála getur alltaf fundið leiðarljós sem sýnir henni leiðina út úr myrkinu.